blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

1.07.2005

Skíði, pönnukökur, steinar og tímaraðir

Jæja gott fólk, það er föstudagur og eg er að telja min til að geta komið mér út. Ég er búin að vera að leiðrétta tímaraðir í allan dag og gjörsamlega að drepast úr leiðindum! Engin hefur verið málglaður á msn í dag og síminn minn hefir ekki hringt þannig það verður sennilega að skafa mig uppúr þessum stól vegna bráðnunar af leiðindum. Fór að vísu ímjög skemmtilegan hádegismat... en samanlagður tími síðan ég kom til baka hefur verið svo þreytandi (2 klst og 19 min) að það er eins og timin hefur staðið í stað. Tilraunir hafa samt staðið yfir síðan kl 8:02 í morgun við að gera þetta allt eins skemmtilegt og á er kosið. Tónlistinn er búin að vera í botni í eyrunum í allan dag... búin að fara í gegnum marga marfa diska.. hlustaði smá tíma á útvarpstöðina voice í köben :) alltaf gaman að dönsu hipp hoppi og rappi!!! kætir og hressir :P en ekki í stuði fyrir sænska slagara í dag! þannig engin sænskur Bó eða Lísa Ekhdal.. nuna er það svo portishead... takk aftur stebbinn minn!! Aftur á móti er lífið eftir kl 1600 bara skemmtilegt.. stefnan verður tekin á spa stöð og beint í pottinn... því næst bíður mín steinanudd... amm aldrei farið svoleiðis áður en það eru væntingar um unað. Dýrið gaf mér þetta í jólagjöf... endalaust mikið krútt þessi mús sem ég á :) Núna eru bara 3 dagar í íbúðinna ... djöfull hlakka ég til! ég á eftir að vera skemmtilegust á næstu vikum... alltaf að hringja og ath hvað þið eruð að gera.. hvort allir eru ekki í stuði til að mála og skrapa!!!! Er að spá í að tæla ykkur með pönnukökum!!! AAAHHH ja börnin´góð maður leynir á sér!!!!!
Langar svo að fara á skíði á morgun.. heyrði það að það væri fint færi !! Hefur maður samvisku til að stinga af og skíða??Eða á maður ekki að nota tíman og fara í íbúðar-tækja-leit.. eða taka niður jólinn? Ég er sennilega búin að búa of lengi þar sem ég bý núna... það er næstum búið að jarða kæruleysið mitt..... Verð að ná mér í svoleiðis aftur

0 Comments:

Post a Comment

<< Home